miðvikudagur, ágúst 18, 2010

Textar & skilti #1

Tók mér frí eftir hádegi í dag og skellti mér í bæinn, markmiðið var að taka myndir af letri, textum skiltum ofl í þeim dúr. Ég tók svo mikið að þetta verður í 4 pörtum og kemur ein á dag.

Ég ætla að reyna að fara oftar einhvert og taka myndir af einhverju ákveðnu, næst langar mig að taka myndir af einhverjum formum sem verða á vegi mínum, t.d. kassar, hringir, horn, línur. Svo fékk ég líka þá hugmynd að það gæti verið gaman að taka bara myndir af spegilmyndum, semsagt taka myndir af hlutum sem speglast í gluggum.

Engin ummæli: